top of page

Stóri hvalur

  • Writer: Guðmundur Sigurþórsson
    Guðmundur Sigurþórsson
  • Jan 28
  • 1 min read

Updated: Jan 29

Stóri hvalur er stórskemmtilegur og sívinsæll leikur. Ég veit ekki nákvæmlega hvar hann byrjaði en hugmyndina fékk ég á Leikskólanum Klettaborg, þar var leikurinn með útprentuðum myndum en ég vildi prófa að gera hann stafrænan.

Í þessum leik er bæði gaman að læra litina fyrir yngstu, æfa sig að vera glaður eða leiður og að æfa sig í að vinna ekki alltaf.

Einnig er kjörið tækifæri fyrir eldri að læra samstöfur, eða að klappa atkvæði. Glögg eyru heyra að t.d. appelsínugulur passar illa inn í lagið. Það getur verið gaman að klappa alla mismunandi litina og leyfa börnunum að velta fyrir sér af hverju appelsínugulur passar ekki inn í lagið.



Leikurinn


Stóri hvalur

Ýta þarf á græna fánann til þess að byrja leikinn aftur

Barnið velur lit og svo er lagið er sungið við laglínu Meistara Jakob

Í eyðurnar á að setja litinn sem barnið valdi


Stóri hvalur, stóri hvalur

hvar ert þú, hvar ert þú?

undir___ laufi, undir ___ laufi

Hér ýtir barnið á laufið sem það valdi og annað hvort sungið

Ekki hér, ekki hér

eða

hér er ég, hér er ég 


eftir hvort hvalurinn finnst eða ekki

Gott að þykjast vera leið ef hann finnst ekki


Hægt er að ýta á bláa takkan í efra vinstra horni, þá verður hvalurinn undir öllum laufum sem eftir eru. Gott að styðja börn sem vilja ekki taka þátt eða eru lítil í sér


Hér fyrir neðan er hægt að skoða leikinn, eða spila stærri útgáfu hér



 
 
 

Comments


bottom of page