top of page

Dýrin í lyftunni

  • Writer: Guðmundur Sigurþórsson
    Guðmundur Sigurþórsson
  • Jan 28
  • 1 min read

Updated: Feb 11

Dýrin í lyftunni er leikur sem að börnin hafa endalaust gaman af.

Upprunalega hugmyndin kemur frá Birte og Immu á Börn og Tónlist.

Ég bjó til þennan einfalda leik, sem að virkar líka á iPad, þar sem að börnin fá tækifæri til þess að opna lyftuna, með græna takkanum og lýsa hvaða dýr er í lyftunni. Þau þurfa þá að ákveða hvað dýrið gæti gert við mann. Hér er gott að finna eitthvað sem að maður myndi kannski ekki vilja láta gera við mann, þar er þá hægt að taka umræðuna um að segja stopp og að setja öðrum mörk.

Lagið býður líka upp á mörg góð tækifæri til málörvunar.

Töluorðin, fyrstu, annarri og þriðju hæð.

Fallbeyginar sagna. "Já getur hann bitið man, þá syngjum við þú mátt ekki bíta mig."

Kyn orða kemur einnig inn. Ef sungið er um ljón þá syngjum við "Ég er soldið smeykur við það" en ef það er hundur þá "Soldið smeykur við hann"

Fleirtala orða má einnig blanda inn í og syngja af og til um fleiri en eitt dýr í lyftunni í einu. Byrja að syngja um einn hund og svo um marga hunda.


Góða skemmtun


Græni takkinn opnar lyftuna og bleika örin lokar henni og fer á næstu hæð.

Það eru tíu hæðir í leiknum eins og er og dýrin eru handahófskennd.



 
 
 

Comments


bottom of page