Yfir borgina
- Guðmundur Sigurþórsson
- Jan 28
- 1 min read
Updated: Feb 11
Yfir borgina er lag sem að ég hef unnið oft með og lengi.
Textinn er fullur af myndlíkingum og fjallar um, eftir minni bestu vitund, depurð og að geta ekki leitað sér aðstoðar til þeirra sem geta hjálpað. Þó að maður viti hvaða spor maður á að taka, er oft erfitt að stíga þau og gera það sem að maður veit að myndi hjálpa sér.
Þessar kringumstæður þekkja börn ansi vel. Þau eru miklar tilfinningaverur og eiga mun oftar í samskiptum við aðila sem særa þau án mikillar umhugsunar.
Börnin geta vel tengt við innihald lagsins þegar að þau öðlast betri skilning á því.
Þess vegna er þetta lag vel til fallið að skoða með börnum og kanna saman um hvað lagið er og hvort að þau kannist við að líða svona.

































Comments